Jæja kannski tími á nýtt blogg.....það er svosem ekkert nýtt búið að gerast nema að ég er hætt hjá Gunna einkaþjálfara, núna ætla ég að gera þetta alveg sjálf.....ég get, ég ætla og ég skal eru setning sem ég lærði þegar ég var hjá Gauja litla fyrir 5 árum síðan hehe....þá komst maður niðrí 87 kg

en maður er búin að éta það allt saman á sig og meira en það heheh....en minn dagur mun koma hehehe
Amma Sigga er á spítala, búin að vera þar í næstum því 2 vikur, það sprakk í henni botnlanginn

en hún fær að fara heim á morgun

og auðvitað er gellan búin að vera dugleg að heimsækja ömmu sína
Er búin að kaupa mér kort í sundlaug Kópavogs þannig að ég er strax byrjuð
Svo fer fjarnámið að byrja þannig að það verður nóg að gera hjá mér næstu mánuði, læra vinna og sofa

og auðvitað fara í ræktina

En já Anna Sóley stendur hérna yfir mér og biður að heilsa öllum sem lesa þetta og segir ykkur að vera dugleg að lesa bloggið mitt

ps. Anna Sóley er að fara að Reykjum þann 22 september með skólanum.....má ekki taka gemsan með og eru sumir ekki sáttir við það hehe

Kveðja
Annz og Ellz
gellurnar í Furugrundinni